Send As SMS

þriðjudagur, júní 06, 2006

Að loknu humarpartii

Læt ég fylgja uppskrift af pastarétti ofan í c.a. 250 manns.

4 kg. laukur, gróft skorinn
3 bollar olía
6 chilli
1-1,5 dós maukaður hvítlaukur
10 dósir niðursoðnir tómatar
10 dósir kræklingur (safinn sigtaður frá og geymdur)
3 kg rækja
4 pokar af sjávarréttablöndu frá toppfiski
15 kg spaghetti
6 msk svartur pipar
5 fiskiteningar


-----

taktu 2 mannætupotta, 30-50 lítra og sjóddu vatn í öðrum...
í hinum skalti steikja lauk, chilli, hvítlauk og olíu þangað til laukurinn er orðinn vel mjúkur.

Þá seturðu kræklingakraftinn, og tómatana útí og sýður dáldið niður þangað til tómatarnir eru orðnir maukaðir

mokaðu svo sjávarfanginu útí pottinn (öllu nema krælkling) og sjóddu í svona 5 mín, slökktu undir þessu og leyfðu að standa í svona 30 mín

nú á vatnið í hinum pottinum að vera farið að sjóða, sjóddu spaghetti, sigtaðu það, láttu kræklinginn út í sósuna og helltu yrifr pastað...

gott er að bera fram í þvottabala eða einhverju álíka stóru íláti

0 Comments:

Post a Comment

<< Home