mánudagur, mars 24, 2008

Blóðbað

Það verður blóð þema  á L39 um næstu mánaðarmót. Blóðugt fillet, blóð og rauðvín blandað saman í sósu. Eftir að hafa verið sleginn í andlitið með glasi verður maður að pumpa í sig super egóinu aftur. Tvisvar til þrivsar ætti að duga.

Vorið er komið, drögum upp sverðin og kristals glösin.

Kveðja,

Monsieur LeBoeuf

miðvikudagur, maí 30, 2007

Jói mættur

Tók 105 kg í bekknum eftir 36 mánaða taktíska hvíld, hrikalegur

laugardagur, febrúar 17, 2007

Sic transit gloria mundi


fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Fleiri tvífarar


Þessir góðu vinir sáust saman á kaffibarnum...

tvifarar




þetta eru tvífarar vikunar

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

hardon & gusher xpt


jæja þá, menningardúettin kom saman enn á ný eftir langan aðskilnað og sýndi lóðunum hvar davíð setti þumalinn. aðskilnaðurinn er búinn að vera erfiður en eftir misheppnaða tilraun hardons til að breiða út menningarboðskap þeirra félaga þá hefur hann snúið aftur í salinn til þess að ná áttum. gusher er búinn að vera einn í dúett, en eins og allir vita að þá er betra að vera með hardon í dúett. ekki má þó misskilja þessa síðustu málsgrein sem svo að gusher eigi við ristruflanir að stríða, þvert á móti stendur honum sem aldrei fyrr.

menningarkveðjur
hardon

mánudagur, september 11, 2006

Ný stjörnustríðsmynd

Leikstjórinn mætti til að massa upp Naldo Calrissian og Chewie fyrir tökusession sem verður tekið í miðbæ reyjavíkur eða reykjaogvín eins og hún heitir næsta kafla starwars eða episode 101 - The Beer truck menace.

Megi þið lifa heil og veri mátturinn með ykkur.

N

Helgartremminn

miðvikudagur, september 06, 2006

Kom, sá og slefaði...

Ekki til stórræða í dag... minni helst á vondann landsleik í fótbolta.

Mælingin:
5,5% í rafmagninu (voða lítil fita)
12.1% í klípu

Þið megið velja tölu til að trúa...

Naldi Feiti

þriðjudagur, september 05, 2006

björninn rumskar úr hýðinu

Mr Alfons X, mættur, feitur og þreyttur.

TÓK SMÁ á ÞVÍ. ÁTTI EKKI MEIRA INNI EN NOKKRAR SETNINGAR MEÐ CAPS. ÞETTA KEMUR VONANDI MEÐ HAUSTINU.

PS Hérna kemur fitumælingarniðurstaða.

17.2 %
14.4 kg af pjúra fitu.

mánudagur, september 04, 2006

!!!

Það er mér sönn ánægja að tilkynna eftirfarandi:

VETRARDAGSKRÁ MMM ER HAFIN.

Ég vona að menn taki sig saman í andlitinu og bryðji járnin af kappi fram til jóla, en þá verður tekið stutt hlé til ársins 2007 og svo byrjar ballið aftur miðvikudaginn 3 janúar.
Yfirlýst markmið fyrir jól eru að taka sig vel út á sundskýlu....NB. HVAÐA LÁNSSKÝLU SEM ER.
Markmið eftir jól verða rædd í desember byrjun

Eftir fitumælingu á sjúka og director eru tölurnar eftir farandi

Sjúki
rafmæling: 15%
klípa:17.8%

Director
rafmæling: 19.9%
klípa:24.3%

Kveðja,

Sikkus Maximus & Herr Direktör

þriðjudagur, júní 06, 2006

Að loknu humarpartii

Læt ég fylgja uppskrift af pastarétti ofan í c.a. 250 manns.

4 kg. laukur, gróft skorinn
3 bollar olía
6 chilli
1-1,5 dós maukaður hvítlaukur
10 dósir niðursoðnir tómatar
10 dósir kræklingur (safinn sigtaður frá og geymdur)
3 kg rækja
4 pokar af sjávarréttablöndu frá toppfiski
15 kg spaghetti
6 msk svartur pipar
5 fiskiteningar


-----

taktu 2 mannætupotta, 30-50 lítra og sjóddu vatn í öðrum...
í hinum skalti steikja lauk, chilli, hvítlauk og olíu þangað til laukurinn er orðinn vel mjúkur.

Þá seturðu kræklingakraftinn, og tómatana útí og sýður dáldið niður þangað til tómatarnir eru orðnir maukaðir

mokaðu svo sjávarfanginu útí pottinn (öllu nema krælkling) og sjóddu í svona 5 mín, slökktu undir þessu og leyfðu að standa í svona 30 mín

nú á vatnið í hinum pottinum að vera farið að sjóða, sjóddu spaghetti, sigtaðu það, láttu kræklinginn út í sósuna og helltu yrifr pastað...

gott er að bera fram í þvottabala eða einhverju álíka stóru íláti

þriðjudagur, maí 23, 2006

Frægðarhöllin

A klúbbnum er það helst að frétta að Smiðurinn stimplaði sig inn í þriggja stafa klúbbinn í guðsgreininni og undirritaður vippaði 112kg upp í Prinsbingobeygjunni.
Kveðjur frá þeim sem draga vagninn.

þriðjudagur, apríl 25, 2006

Síðustu Móhíkanirnir

Jæja kæru félagar, ég aka Sikkus Maximus og Smiðurinn höfum haldið líftórunni í dauðvona félagslífi klúbbsins.
Hákon vippaði 90 kg upp í guðsgreininni og Sikkus kemst aftur í 3gja stafa flokkinn í bekknum innan 3 vikna og hærra fyrir sumarið.
Hvað er með ykkur ætlið þið að enda sléttfeitir með reykingarlykt? Er engin virðing borin fyrir musteri sálarinnar? Hvernig ætlið þig að þola okkar hedóníska lífstíl ef þið bryðjið ekki járnin reglulega? Hvað er að ykkur rúllupylsurnar ykkar?

mánudagur, apríl 03, 2006

Bring That Beet Back!

fimmtudagur, mars 30, 2006

Hardon & Gusher version 3.14

Heltókum á því í guðsgreininni, djöfulsgreininni og trjágreininni ( sem eftir stutt slagsmál endaði djúpt í iðrum Gushers, en leið hennar þangað lá um neðri meltingarveg hans). Hardon kom ferskur inn eftir alltof langa pásu blýstóð allar þyngdir. Samanlögð standlengd allra karlmanna hér í salnum var vel á annað hundrað metra, enda hækkaði SMI-stuðullinn (Sexual Mass Index) hér í salnum um nokkur þúsund stig við innkomu Hardons. Vart þarf að taka fram að sturtuferðir urðu mjög vandræðalegar hjá öllum karlmönnum staðarins.
Eftir langar fundarsetur var ákveðið að sleppa byssunum og setja púðrið annars staðar, Hardon kom illa útúr þeim leik! og endaði á slysó.

Hardon, Gusher og Guðjón Haralds- endaþarmsskurðlæknir, kveðja héðan úr háskólasjúkrahúsinu í Fossvogi.

þriðjudagur, mars 28, 2006

Ég og Rassi Prump

HVAÐ hefur nákvæmlega verið að fara í gegnum hausinn á þessu manni hérna

TJEKKIÐ Á ÞESSU



sennilega besta ástæða fyrir listaháskólum sem ég hef séð!!!!

mánudagur, mars 27, 2006

Helgi Björns, enn og aftur

Ég nenni ekki skrifa neitt sérstaklega gáfulegt hérna inn en renni í staðinn lauslega yfir neyslu helgarinnar sem var þónokkuð yfir meðallagi.

1. Ban Thai

Fórum 2 og tókum snilldina Öskur tígursins, sem ég get ekki krakkað bragðið af, algjört lostæti, ***** fimm stjörnur en þetta með reykingabannið er ekki eins þrúgandi og á Austur Indía þar sem yfirleitt er skemmtilegra fólk að éta á banthai heldur en á AI

Annað sem við borðuðum var nautakjötssalat, sem ég hef gert betur, og einhver mildur kasjúhnetukjúlli sem vinnur engar keppnir.

þá að djönkfúd maraþoninu sem við fórum í eftir að óminnsishegrinn hafði bitið okkur í rassinn.

Það sem fór ofan í okkur var.......

1 Pizza á kebabhúsinu. merkilegt hvað það eru fínar sneiðar hjá tyrkjunum, fékk mér reyndar kebab en fékk að smakka pizzuna hjá elskhuga mínum.
2 Pizza King, átum reyndar ekki neitt en stemningin inn á staðnum var eins og á sveittasta hnakkastað í heimi
3 Purple Onion, fékk eitthvað í brauði hjá Alex og Jeppa sem var gott og spicy,
4 Pulsa á skalla í árbæ. Ef væri til svona staðall frá SS um hvernig pulsa á að vera að þá hefði skalli fallið
5 KFC Zinger twister, viðeigandi áður en maður henti sér í heitu pottana í hafnarfjarðarlauginni..... svona rétt áður en maður fór í heimsókn til mömmu og pabba að éta kalkún með ÖLLU



þá er bara að lyfta!!!!!!!!!!

sunnudagur, mars 26, 2006

Til Hamingju

Til hamingju með afmælið Reynir. Megir þú verða elgmassaður og hesttanaður sem allra allra fyrst.

Húrra!

Nefndin

fimmtudagur, mars 23, 2006

Útrýmingarhætta

Kæru reykingamenn.

Ban Thai er orðinn reyklaus staður, vinsamlegast standið fyrir utan þegar þið reykið.

Nefndin

mánudagur, mars 20, 2006

bring that beat back!

Jey loksins kominn upp aftur þessi elska! og með nýtt lúk, svart og önnur töffheit....

ég mæti á eftir í tilefni þess.

Vantar samt myndir, a.m.k. af þeim sem setja "módel" í cv-ið sitt!!!!!

fimmtudagur, mars 16, 2006

Sultuveislan

Smá ryð í mönnum eftir áhugaverðan miðvikudagsklúbb.... Einkenndist af planleggingum fyrir stórtónleika Gullfoss og Geysis í höfuðstað norðurlands, Akureyri núna á morgun, föstudag!!!

Tengið saman max dagsins:

1 105kg a Gutlus Hnébeygja
2 75kg b Naldi Hnébeygja
3 95kg c Gutlus bekkur
4 102kg d Jói bekkur
5 107kg e Naldi bekkur

lausnin er eftirfarandi: 1d, 2e, 3c, 4b, 5a

planið er svo sund, gufa, ljós og annar hedonismi eitthvað frameftir kvöldi...engin rassmök samt... ekki í kvöld.

Megi guð, jesú eða einhver annar eingetinn, geyma ykkur og vaka yfir ykkur.
Ykkar einlægir Arnaldur Hilmisson og Jói B.

Krúa Thai for dummies

Það hefur borið á því undanfarið að ég hafi borðað mikið á Krúa Thai, ekki að ég hafi fitnað, ég er alveg jafn horaður og alltaf. En svo að fólk fari ekki að eyða peningunum sínum í vitleysu þá ætla ég að mæla með nokkrum réttum sem allir eiga það sameiginlegt að vera aftast á matseðlinum, skrítin pæling að setja alla bestu réttina aftast á matseðilinn...

#29 Pad Ped (nautakjöt, forðist fuglaflensu)
Vel kryddað nautakjöt með thai basil og piparkornum, best að biðja um hann sterkann, hann á að brenna. Anís, chilli og sykur eru aðal playerarnir í þessum rétti.

#31 Cúú-chii fiskur
Mjög basic fiskur með rauðu karrí / kókosmjólk. Hef aldrei fengið vondann fisk á Krúa.

#32 Blaa laad prikk geng
Rótsterkur fiskur í kryddhjúp, alger snilld, mjög minimal.

#33 Blaa padd pong kari
Mildur fiskur í kókos-karrí-snilld. Ekki sterkur, tilvalinn fyrir konuna, en langt því frá að vera væminn. Fiskurinn á að vera ýsa.

#36 Naam Dogg nautakjöt
Algert snilldar salat, steikt nautakjöt í lime,koriander og fiskisósu.

#37 Jamm Nua (Yum nua)
Annað thai nautakjötssalat sem er snilld, brennir smá en er sársaukans virði.

#2 Pad Thai
Núðlur alheimsins... hnetur og rækjur. Skammturinn er ca. 500g þannig einn er nóg fyrir 2.


Munið bara...

Kai = kjúklingur
Khao = hrísgrjón
Kha = engifer
Tom = sjóðandi
Chan hew = ég er svangur!

Ekki klúðra þessu

N

ps. Ef það kom ekki nógu skýrt fram þá er þetta best-value-for-money norðan alpafjalla og í top 3 thai á íslandi... ban-thai, síam og krúa... Respect!

miðvikudagur, mars 15, 2006

mad max og austur india fjelagið

vonandi var maxið gott, kem og rústa þessu á morgun ef mammon sleppir mér fyrir kvöldmat.++


verðum að vera duglegri að fara að pósta mataruppskriftum, komið hefur á daginn að uppskriftir klúbbsins hafa bjargað samböndum fólks útí bæ


og einnig ef fólk nennir að setja inn krítík á veitingastaði...
læt ég einn stuttan fylgja;

AUSTUR INDÍA FJELAGIÐ, hverfisgötu
*

Fórum í góðra vina hópi á AIF fengum FRÁBÆRAN mat, enda Pramod kafteinn í brúnni, en kom á óvart að þegar við vildum neyta tóbaks, sem selt er af íslenska ríkinu að þá vorum við REKIN ÚT!!! og látin reykja á fyrrnefndri hverfisgötu með tilheyrandi slettum úr drullupollum þegar að strætó keyrði framhjá

DÓMUR: Sparið peningana, kaupið rauðvínið í ríkinu, og pantið matinn heim, eða eldið bara eitthvað annað. Leiðinlegt að sjá á eftir þessum stað sem skemmtilegum partístað.

fimmtudagur, febrúar 16, 2006

Return of the king

Það er með stolti og bros á vör að klúbburinn fékk aftur úr helju, jóa b!

Strákurinn tók aðeins á því og pumpaði 70 kg í bekknum en það stórsér á honum samt eftir árs fjarveru frá járnunum.

miðvikudagur, nóvember 23, 2005

Renaissance

Hommar nær og fjær.

Eftirlifendur MMM hafa heltekið á því í guðsgreininni og bingókúlubeygjunni undanfarið.

En þeir eru:

Furtstinn 81 kg

Takkalakki 65 kg (með litlum mixer)

Herr Direktor 89 (lítilli kameru)

Tekið stöðupróf í upphitunarþyngdum

Takkalakki HB 87KG BP 60KG

Herr Direktor HB 94.5KG BP 65KG

FURSTINN HB 107KG BP 90KG


Reynið nú að mæta jellybollurnar okkar

mánudagur, ágúst 08, 2005

Haust 2005 - Benetton

Jæja, haustveðrið er komið. Þá langar mig alltaf að kaupa mér peysu úr kasmírull frá Benetton, helst röndótta. Einnig fæ ég alltaf gífurlega löngun til að gera eitthvað í mínum málum , hver sem þau eru hverju sinni.

Ég hef því ákveðið að gera tvennt.

1) Gerast grænmetisæta um óákveðin tíma

2) Vera duglegur mæta í líkamsmusteri MM&M (með duglegur á ég við að mæta það oft að Valgeir, Gústi og Addi geti ekki verið með kjaft þegar maður hittir þá á börunum, Addi verður reyndar með kjaft út í rauðann dauðann ef ég þekki hann rétt).

3) Kaupa Benetton peysu, má reyndar vera Missoni....

jæja nú rignir háðsglósunum yfir mann þannig að það er best að fara gera eitthvað...

kveðjur....

PS Ég legg til að það verði haldinn Haustfagnaður MM&M og þá verði í fyrsta skipti meitlaðar í stein. Til þess verður að semja þær. Ég man bara eftir tveimur frá seinasta hausti. 1) Bannað að byrja með fyrrverandi kærustu. 2) Bannað að að horfa í augun á þeim sem þú réttir lyftingarbeltið.

Uppástunga um reglu 3: Sparneytni bönnuð

Og keep'em coming....

PPS Hafði ekki tíma til neins nema hlaupa 2.5 km, vegna bloggs..........þetta byrjar ekki vel....;(

PPPS Addi er með homma á heilanum.

miðvikudagur, ágúst 03, 2005

Polpette Naldi

Þar sem Naldi er algengt ítalskt kvenmannsnafn fannst mér við hæfi að elda ítalskar kjötbollur eins og ítalska hliðar-kvenpersónuleika mínum finnst að þær eigi að vera.

1 búnt steinselja
1 búnt basil
600g Nautahakk eða blandað nauta/grísa
2 dósir ítalskir tómatar
1 þurr brauðsneið (hvítt brauð)
2 egg
1 laukur
1 box sveppir
hveiti
salt
pipar
olía
spagetti

# Fín saxa steinselju og helming af basil (restin fer í sósuna)
# Saxa lauk og sveppi, annað grænmeti myndi ekki skemma t.d. sellerí, gulrætur eða paprika
# Skilja eggjarauður frá hvítum
# Setja hakk, steinselju, basil, eggjarauður og brauð í skál og blanda vel
# Búa til litlar kjötbollur á stærð við Tíkall, hnoða þær með smá hveiti á höndunum og setja þær á disk með hveiti á (svo þær límist ekki og til að fá húð á bollurnar við steikingu)
# Steikja lauk, sveppi og kjötbollur uppúr ljósri ólífuolíu (og annað grænmeti ef það er með) þangað til bollurnar eru brúnaðar og komin stökk húð utanum þær
# Hella tómötum yfir og láta malla í 15 - 20 mín, krydda með salti/pipar
# sjóða spagettí
# Bera fram með parmesan og muna að setja smjör í spagettíið

hægt er að nota líka parmesan í kjötbollurnar sjálfar ásamt því að setja matarrjóma í sósuna rétt áður en hún er borin fram eins og hryðjuverkakvendið vill gjarnan gera.

hér er síðan veitingastaðurinn minn á ítalíu...
Ristorante Naldi

þriðjudagur, ágúst 02, 2005

Tilraunaveiðar og fleira


Það er með sannri ánægju að MMM upplýsir Alþjóða Hvalveiðiráðið um það að nýyfirstaðnar tilraunaveiðar á hrefnu hafa aðallega leitt það í ljós að hrefnan er áberandi best með mikilli teriayki sósu.

Læt svo fylgja með loftmynd af flottasta bakgarði í Reykjavík en grillráð MMM hefur nýlega fengið þar aðsetur

föstudagur, júlí 22, 2005

Þorfinnur og baunagrasið


Snilldaruppskrift frá einum rauðhærðasta manni þjóðarinnar