... Blaðamennska
1991–1992 - Aðstoðarritstjóri á tímaritinu Skýjum ofar - innanlandsflugrit Flugleiða (ritstjóri Magnús Ólafsson)
1993–1994 - blaðamaður á Pressunni. (ritstjóri Karl Th. Birgisson)
1995 – blaðamaður á Morgunpóstinum (ritstjóri Gunnar Smári Egilsson)
1996–1997 - blaðamaður og fréttastjóri á Alþýðublaðinu (ritstjóri Hrafn Jökulsson)
1998 – blaðamaður á Helgarpóstinum (ritstjóri Karl Th. Birgisson)
2001 – ritstjóri tímaritsins „i“ – hafnfirskt tímarit
2002-2005 – blaðamaður á Fréttablaðinu (ritstjóri Gunnar Smári Egilsson)
2005-2006 – blaðamaður á DV (ritstjóri Mikael Torfason/Illugi Jökulsson/Jónas Kristjánsson þá Páll Baldvin Baldvinsson og Björgvin Guðmundsson)
2007-2009 – blaðamaður á Fréttablaðinu (ritstjóri Jón Kaldal)
... Texta- og handritsgerð
1998-2001 hjá fyrirtækinu Gagarín (framkvæmdastjórar Geir Borg og Tindur Hafsteinsson) og Stefju eða TrackWell (framkvæmdastjóri Ágúst Einarsson).
Upphaflega ráðinn til að gera handrit að margmiðlunardisk sem utanríkisráðuneytið gaf út í tengslum við heimssýninguna í Hanover árið 2000 - Expó 2000. Í kjölfarið fylgdi að skrifa handrit að tölvuleiknum World of Yggdrasil - Thors Hammer Retrieved. Starfið þróaðist meðfram handritsgerð tölvuleikja útí umsjón með kynningarefni og fréttatilkynningum einkum eftir að Gagarín gekk að hluta inní fyrirtækið TrackWell árið 2001
... Dagskrárgerð í útvarpi –
1993-1995 – Górilla. Umsjónarmaður ásamt Davíð Þór Jónssyni. Morgunþáttur á Aðalsstöðinni. Útvarpsstjóri Þormóður Jónsson.
1996-1997 – Sleggjan. Umsjónarmaður ásamt Davíð Þór Jónssyni. Vikulegur þáttur á Rás 2. Dagskrárstjóri Sigurður G. Tómasson.
1997-1999 – King Kong. Umsjónarmaður ásamt Steini Á. Magnússyni. Morgunþáttur Bylgjunnar. Dagskrársjóri Hallur Helgason.
1999-2001 – Þjóðbraut - fréttatengdur síðdegisþáttur Bylgjunnar. Umsjónarmaður ásamt Skúla Helgsyni, Snorra Má Skúlasyni, Guðrúnu Gunnarsdóttur og Agli Helgasyni.
2004-2005 – King Kong. Umsjónarmaður ásamt Steini Ármanni Magnússyni. Vikulegur þáttur á útvarpsstöðinni Skonrokk. Dagskrárstjóri Sigurjón Kjartansson.
Eitt og annað að auki:
...Almenn sveitastörf á Jökuldal sem unglingur á bæjunum Grund og Eiríksstöðum (að sumri frá 1970 - 1976)
... Unglingavinna - í Vinnuskóla Hafnarfjarðar (sumar 1977 og 1978)
... Járnsmíði og almenn verkamannavinna - við Bátalón í Hafnarfirði (sumrin 1979 til 1980)
... Uppskipun og almenn frystihúsastörf í Hafnarfirði, bæði hjá Bæjarútgerð og Eimskipum. Íhlaupavinna á árunum 1976 - 1980
... Rythmagítarleikur og söngur - í hljómsveitinni Kátum piltum sem m.a. hefur sent frá sér tvo diska (Einstæðar mæður árið 1987 og Blái höfrungurinn árið 1992) og gert stuttmynd fyrir Ríkisútvarpið Sjónvarp (Hinir ómótstæðilegur árið 1988) auk þess að hafa staðið fyrir skemmtunum og dansleikjahaldi víða um land allt (og reyndar heim ef því er að skipta)
...Véla og verkamannavinna - hjá Álverinu í Straumsvík á um tíu ára tímabili samhliða námi (á árunum 1980 - 1990)
... Verkstjórn - hjá Vinnuskóla Hafnarfjarðar í ein tvö sumur - 1983 og 1984 (en þá fór fyrir unglingavinnunni Ingvar Viktorsson)
... Dýragæsla - við Sædýrasafnið í Hafnarfirði árið 1984
... Grunnskólakennsla - við Brúarásskóla í Jökulsárhlíð (skólastjóri Svavar Björnsson skólaárið 1982-1983) en þangað var haldið strax að loknu stúdentsprófi og ári síðar eða 1984 við Öldutúnsskóla í Hafnarfirði (skólastjóri Haukur Helgason)
... Aðstoðarleikstjórn - við Iðnó (Faðirinn e. Strindberg, leikstjóri Sveinn Einarsson árið 1987) og Þjóðleikhúsið (Aurasálin e. Moliere, leikstjóri Sveinn Einarsson árið 1986)
... Leikur - sem aukaleikari við Þjóðleikhúsið í verkunum Uppreisnin á Ísafirði e. Ragnar Arnalds, 1986-1987 í leikstjórn Brynja Benediktsdóttur, Tveimur einþáttungum á Litla sviðinu e. Singe og Brecht í leikstjórn Baldvins Halldórssonar árið 1977 - 1978 og Máttastólpum þjóðfélagsins e. H. Ibsen árið 1978 - 1979, leikstjóri Baldvin Halldórsson
... Leikstjórn. Verkefni: Fúsi froskagleypir e. Ole Lund Kirkegaard hjá Unglingaleikhópnum Sögu á Akureyri árið 1990, Dularfulla hvarfið e. Hjördísi Hjartardóttur, Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur hjá Leikfélagi Dalvíkur árið 1991 og Hinn eini sanni seppi (Real Inspector Hound, 1992) e. Tom Stoppard hjá Stúdentaleikhúsinu
... Dagskrárgerð í útvarpi - á Útvarp Hafnarfjörður (Halldór Árni Sveinsson útvarpsstjóri), Aðalstöðinni (Þormóður Jónsson útvarpsstjóri), Rás 2 (Sigurður G. Tómasson dagskrárstjóri) og Bylgjunni (Hallur Helgason dagskrárstjóri). Einkum hefur þessi dagskrárgerð verið í félagi við Davíð Þór Jónsson og Stein Ármann Magnússon en má í þessu sambandi nefna útvarpsþættina Górillu (1992-1994), Sleggjuna (1997) og King Kong (1997-1999). Einnig má nefna fréttatengda útvarpsþáttinn Þjóðbraut sem undirritaður hafði umsjón með ásamt Agli Helgasyni, Skúla Helgasyni og Guðrúnu Gunnarsdóttur, 1997-1998
... Blaðamennska (lausamennska) – greinaskrif fyrir tímarit á borð við Mannlíf, Séð og heyrt, Bleikt og blátt og sjómannablaðið Víking svo eitthvað sé nefnt. Þá verður og að nefna ritstjórn Árbókar Slysavarnafélags Íslands (í tvígang 1991 og 1992) ásamt Kristjáni Þorvaldssyni.
... Dagskrárgerð í sjónvarpi - sem einn þriggja umsjónarmanna (ásamt Davíð Þór Jónssyni og Steini Ármanni Magnússyni) sjónvarpsþáttarins HNN - Hafnfirska fréttanetið sem sýndur var á Stöð 2 árið 2000 (dagskrárstjóri Páll Baldvin Baldvinsson)
... Auglýsingagerð - hugmyndavinna í lausamennsku við að semja og skrifa auglýsingar fyrir auglýsingastofur, einkum Máttinn og dýrðina. Ein auglýsingaserían hlaut verðlaun IMARK árið 1997 í flokki útvarpsauglýsinga, OLW snakk
... Vefsíðugerð - er nánast eingöngu í tengslum við textagerð og hugmyndavinnu en ég hef umtalsverða reynslu af slíku í tengslum við störf mín hjá Gagarín og Trackwell (www.vit.is) og ekki síst fyrir nýtt fyrirtæki á sviði margmiðlunar, Birtingarholt