Ég hef orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að áhugamál og atvinna hafa haldist að miklu leyti í hendur. Einsog sjá má í "Starfsreynslu" eru það einkum menningarleg fyrirbæri á borð við tónlist og leikhús sem hafa heillað. Að auki má nefna að ég tók á árum áður virkan þátt í starfi Leikfélags Hafnarfjarðar sem var endurreist af félögum úr Leikfélagi Flensborgarskóla þar sem ég var einnig virkur meðlimur. Þá má nefna áhuga á skák en ég er í stjórn skákfélagsins Hróksins sem er einmitt núverandi Íslandsmeistari og gaman er að segja frá því. Og svo grobbið fái nú notið sín enn áfram má og nefna íþróttaáhuga en á yngri árum lagði ég stund á handbolta með FH og á í fórum mínum nokkra gullpeninga því til staðfestingar.

Að endingu má geta þess að í tengslum við störf mín hjá Gagarín vaknaði áhugi á tölvuleikjum sem er til þess að gera nýtt svið og hefur ekki enn hlotið viðurkenningu íþróttahreyfingarinnar. Hins vegar eru þúsundir manna sem iðka gagnvirka keppni á netinu í ýmsum skotleikjum. Hef ég um nokkurt skeið verið leiðtogi liðs í counter-strike (eða klans einsog það kallast) sem heldur úti galgopalegri heimasíðu og er einn umsjónarmanna fjölsóttasta og virkasta vefsvæðis hugi.is - Half-Life